Ni Hao
26.06.2007 15:13:58 / dagnyjons

Eg er fjólublá!!

Langt síðan ég hef skrifað færslu.. er bara búin að vera svo rosalega upptekin við að vera í sumarfríi og skemmta mér ;)..

Fór á ströndina í dag og hef ekki farið í langan tíma þar sem er rigningatímabil og það bara rignir alla daga, ég mathilda vinkona mín ákváðum því að taka svakalega áhættu í dag og fara samt bara á stöndina, var messja rigning þar sem ég bý!
Þegar við komum var bara glampandi sól og 34 gráður og ég steikti mig alveg og er núna fjólublá afþví ég er svo brennd.. og lít líka út einsog homeblest afþví ég er bara steikt á annari hliðinni :D.. búin að setja svona 5 lög af aftersun BARA á andlitið á mér!!.. já sólin í hong kong er víst sterkari en mig hafði grunað.

Núna er maður svo að fara að undirbúa heimkomu og ég er búin að vera að standa í því að senda heilu kassana til íslands af allskonar drasli, aðallega fötum samt. Sendi 10 kg um daginn og önnur 10 kg í dag. Ég er samt alveg í bölvuðum vandræðum. Kom semsagt með tvær ferðatöskur hingað en svo breytti British Airways reglunum um farangur og núna má ég bara taka eina tösku og þá verð ég að skilja hina eftir! ekki sátt með þessar 2007 reglur hjá þeim!.. vona bara að þetta hafist allt á endanum.

Átti alveg klikkaða helgi og það var farið út á djammið á hverju kvöldi. Byrjaði á fimmtudaginn þá fórum ég og Emily á uppáhaldsklúbbinn okkar og vorum eitthvað að dansa, kemur þá ekki einhver gaur inn allur í blikkandi ljósum og videomyndavél á eftir honum. Við förum að dansa á fullu við ljósamanninn og þetta er allt tekið upp og okkur er sagt að gaurinn sé að fara að gifta sig og þeir séu að taka upp myndband af steggjapartýinu. Hringir svo bara ekki vinkona mín í mig í dag og segist hafa séð okkur í sjónvarpsþætti dansa við mann allan í ljósum!.. þá vorum við bara heillengi að dansa við gaurinn í kínverskum sjónvarpsþætti!! :D

Annars hef ég þetta ekki lengra, farin að bera á mig aftersun og fleira svona skemmtilegt.

 

Sjáumst bráðum!...

 -Dagný-


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 17:20:58 / dagnyjons

Sumarfrí !!!

Loksins er maður kominn í sumarfrí og þarf ekki að mæta í skólann lengur... En stelpurnar eru núna í prófum greyin og ég þarf ekkert að mæta..8)

Svo ógeðslega týpískt að núna akkurat þegar maður dettur í sumarfrí er bara rigning og óveður!.. semsagt 32 stiga hiti og rigning... ömurlegt maður er að deyja úr hita en getur samt ekki farið á ströndina og þessir asnar loka sundlaugunum hérna líka!!.... ég er bara komin með nóg af kínversku fólki... held að allir skiptinemarnir séu það, maður verður bara að taka sér frí frá þessu og vera með vesturlandabúum, þeir eru bestir!! (engir fordómar samt).

Eg ætlaði að vera ógeðslega skemmtileg og setja inn geggjað kúl myndir úr skólanum þar sem ég sést í síðasta sinn í ógeðslegum bláum kínakjól.. en memorycardið mitt beilaði á mér og týndist.. ég er búin að leit allstaðar af því, grunar sterklega samt að hundurinn minn hafi étið það.. hann étur allt!!

Á miðvikudaginn erum við AFS krakkarnir að fara í bátsferð öll saman, semsagt leigja risabát og hafa það gaman og éta og hoppísjóinn og svona.. ég er að biðja fyrir góðu veðri ef það verður rigning er búið að vera stanslaus sturturigning í viku!!!... eg hata rigningatímabil, allir skórnir mínir eru u.þ.b að eyðileggjast.
Rigningavatnið er líka öðruvísi en á íslandi, herna er sýruregn og það eru svo mikil mengun þannig að rigningin er ekki svona hreint vatn og ef að maður fær mikið á sig þá klægjar manni bara endalaust.. ógeð!!

A fimmtudaginn ætlum við nokkrir krakkar til Kína... mér finnst svo hrikalega gaman í kína, ég er eina af útlendingunum hérna sem er bara in love with Kína en allir aðrir vilja bara alltaf vera í Hong Kong.. Ætlum til Shenzhen sem er algjör snilld hlakka ekkert smá til, en þetta verður síðasta kína ferðin mín áðurenn ég fer heim afþví ég á ekki meiri ferðir í vegabréfinu mínu..:(

 

Annars ætla ég að fara að finna þetta memorystick og fara að setja eikkað af nýjum ferskum myndum inn... en hér koma tvær myndir frá seinasta deginum mínum í skólanum minum en þar voru stelpurnar svo sætar í sér að halda fyrir mig pizzupartý..

 

  Photo

Eg með öllum yndislegu núðluvinum mínum... getið svona giskað hvar ég er..:D

 

  Photo

Eg og Bekkjarkapteinnin, Fong On Yee... snillingur mikill :D

 

Fer að vera duglegri núna að skrifa eikkað.. þarf að versla mér líka memorystick..

 

Góða nótt:* 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 00:38:15 / dagnyjons

Mika og Kina..

Jaeja, loksins fae eg mig til thess ad skrifa eitthvad herna inn.. er buid ad vera svo mikid ad gera og svona... fer samt i sumarfri a fostudaginn fra skolanum, ss. 1. juni er seinasti dagurinn minn!!.. tha verdur bara hangid a strondinni og i sundlauginni og eikkad svona gaman ;)

Juni er vist svona rigningatimabil herna, thad er buid ad rigna og rigna... er buin ad vera svo "heppin" herna med vedur ad thad er alltaf glampandi sol og 30+ stiga hiti a vikudogum thegar eg er i skolanum, svo thegar thad kemur fostudagur kemur alltaf rigning.. thannig helgarnar eru alltaf eydilagdar, en thad er ekki haegt ad gera neitt herna i rigningum.. flod a gotunum og skornir manns eydileggjast nanast aftvi madur vedur i oklahau rigningavatni!!

A manudagskvoldid for eg a tonleika med Mika, thetta voru ekki storir tonleikar en madur thurfti ad eiga bodsmida til ad fara, ekki selt inn og ekki auglyst einusinni. Thad voru svona 300 manns tharna og thetta var bara hin mesta snilld... og ekki svo slaemt utsyni ;)
Eg akvad ad fara a tonleikana i haum skom en lenti samt ekki fremst.. en sa alla tonleikana einsog eg hafi verid fremst, en thad var engin staerri en eg fyrir framan mig! einusinni ekki strakarnir... thad var nottla best!!.. eg held ad eg aetli alltaf a tonleika i kina... gaeti verid aftast og sed einsog eg vaeri fremst :D :D

Svo i gaer for eg til Kina med host mommu minni og systir hennar.. forum til Shenzhen i kina, sem er held eg paradis a jordu fyrir thad ad versla!!... Forum i Dim sum fyrst, veit ekki hvort ad eg hafi verid mjog hrifin af tvi.. og svo var verslad, pruttad vid kinverskukellingarnar sem verda alveg brjaladar a manni.. reyna samt alltaf ad svindla a mer aftvi ad eg er hvit!!..
Forum sidan i nudd tharna faranlega nice... 2 klst i nuddi og lsat i azy boy stol i eg veit ekki hvad langan tima med fotanuddara og avaxtabakka ad horfa MTV.. mjog nice!!

 En annars tha gengur allt bara vel.. nema eg held ad eg komist aldrei alla leid til islands med farangurinn minn, eg verd i yfirvigt alveg pottthett.. aetla ad senda allar gallabuxur og jakka heim samt aftvi thad er ekki haegt ad ganga i neinu odru nema pilsum og stuttbuxum herna fyrir hita og raka!!

Hef thetta ekki lengra...

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:19:20 / dagnyjons

klikkað lið..

Það er svo brjálað lið hérna.. ég var að labba heim af lestarstöðinni í kvöld og það var bara allt í löggum og fullt af gaurum og eikkað, held að einhver hafi hent einhverjum niður í ánna hérna fyrir utan. Það er alltaf eikkað klikkað að gerast hérna, um daginn þegar ég kom heim úr skólanum var maður allur í blóði og fullt af löggum og sjúkrabíll.. slagsmál eða eikkað álíka..

Það sem sjokkeraði mig samt mest um daginn. Var í tvöföldum enskutíma, og við vorum að vinna verkefni bara í fyrsta tíma. Í öðrum tíma dreifði enskukennarinn minn verkefnum sem bekkurinn 2 árum yngri hefði verið að gera og leiðréttunarblað og bekkurinn minn átti semsagt að leiðrétta heimavinnu fyrir 2 árum yngri bekkinn afþví að kennarinn var of latur til þess að gera það sjálfur!! Þetta var alveg mjög sjokkerandi fannst mér að kennurum að gera þetta, en sá sami kennari gerir þetta nú oftast bara við eina stelpu í bekknum, réttir henni bunka af verkefnum sem hún síðan leiðréttir, og kennarinn drekkur bara kaffi útí horni á meðan eða fer að versla eða eikkað!.. klikkað lið!!... Sæi ég nokkuð Tómas Bergsson láta okkur leiðrétta bókfærsluverkefni fyrir 3. bekk :D :D

Annars er lítið að frétta. Fór um helgina með nokkrum vel völdum vinum með bát á eyju hérna fyrir utan og fórum á ströndina í smá sólbað, fórum síðan á geggjaðan indverskan veitingastað um kvöldið.

Á sunnudaginn var mér og Emily boðið í miðdegiskaffi.. Fórum og hittum fólk sem við þekktum en þetta var nú ekki beint miðdegiskaffi, heldur var þetta eikkur bar sem var fullt af fólki sem var búið að vera að djamma síðan daginn eftir og kl. var 3 um dag!.. það var endalaust fyndið, fórum svo á eikkurn skemmtistað þar sem voru indónesískar vændiskonur og vorum þar frameftir degi bara að dansa.. það var einum of fyndið að vera að þessu um miðjan dag en stemmningin var einsog svona 4 um nótt á íslandi :D..En þetta er nú einusinni HongKong, allt opið allan sólarhringin og alla daga.

Ætlaði annars bara að láta vita að það eru komnar fleiri myndir núna síðan í nóvember undir nafninu Nóvember-Bland.. en ég ætla að reyna að henda sem mestu inn af Kínaferðinni og Beijing næstu daga..


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 16:16:03 / dagnyjons

Myndir!!!! Believe it or not!!

Loksins Loksins!

Það eru komnar myndir hér til hliðar, síðan í Október (ég veit, skamm skamm).. en þetta dót er í fyrsta sinn að virka, en þetta tók verulega á þolinmæðina en það tók 15 mín. að setja inn 5 myndir, internet tenging nágrannana er léleg! :S

En þar sem þetta er farið að virka þá reyni ég að koma sem flestu inn á næstu dögum/vikum.. allar myndirnar frá Kína og svona..

Annars kom ég einni hérna inn frá Kínamúrnum.
Njótið myndanna þó að þær séu fáar í bili..

 Photo

 

Btw. þá var ég að komast að því að hæð mín er sú sama og meðalhæð kínverskra karlmanna.. það er svo gaman að vera stór í svona smá tíma :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 15:20:21 / dagnyjons

Smá menningarinnskot

Búin að vera alveg bongóblíða hérna í Kína.. Þar með skellti maður sér á ströndina í gær í góðum fíling með öllum núðluvinum mínum..
Veit ekki hvort að ég sé vond að kalla þau núðlur eða grjón en ég er bara svo pirruð á fólki hérna sem er með svona kynþáttafordóma gagnvart manni. Aldrei á ævi minni hélt ég að ég myndi lenda í kynþáttafordómum en þegar ég labba um göturnar eru alltaf eikkerjir gamlir menn að segja eikkurn óbjóð.. langar helst að berja þá, en það kunna allir kung fu herna þannig ég passa mig að bögga ekki nein grjón.

Um daginn var ég að koma heim úr skólanum og þá var bara maður fyrir utan hjá mér og fullt af löggubílum og læti, maðurinn sat bara tjill á gangstéttinni allur útataður í blóði þa hafði bara verið svona crazy gangfight hérna fyrir utan, það var frekar freaky!

Er búin að vera að hlusta mikið á svona Hong Kong tónlist með öðru nafni Cantonpop. Ótrúlegt með þetta lið að öll lögin eru alveg eins og þau taka ekkert eftir því, ef eikkur gerir öðruvísi lag þá selst það ekki og enginn hlustar á það. Mitt uppáhald er Eason Chan, en hann er eini Hong Kong söngvarinn sem kann að syngja. Hinir eru bara svona fólk sem þekkir fólk sem þekkir annað fólk og á pening og vill verða frægt og gerist bara söngvarar þótt það kunni ekkert að syngja og núna eru bara gömlu góðu söngvararnir sem eru svona Björgvin Halldórs í HK að græða. Þannig að ef að þú átt pening og kannt ekkert að syngja og kynnist eikkerju fólki í plötubransanum í HK.. þá getur þú orðið megafræg/ur og allir elska þig! :D

Það er svo merkilegt með Hong Kong stelpur, ef að maður er vinur einhvers þá á maður helst að drulla manneskjuna niður með því að segja henni hvað hún er feit og ljót.. þetta sjokkeraði mig fyrst og ég tók þessu alveg rosalega inná mig þegar allar stelpurnar voru að segja að ég væri feit og liti út einsog svín, en núna er ég farin að gera þetta á móti einsog innfædd. Þannig svona eru samræður mínar við vinkonur mínar í skólanum nokkurnveginn:

Stelpa: Þú ert svo feit, það er alveg einsog þú sért ólétt
Ég: og lentir þú í slysi, andlitið á þér er svo skrítið

Stelpa: Þú ert svona hvít-bleik alveg einsog svín
Ég: Þú ert gul í framan, þú ert alveg einsog Simpson persóna í framan

Stelpa: Þú lítur út einsog svín, farðu aftur í sveitina!!
Ég: með svona hárgreiðslu líturu út einsog betlari.

Þetta eru semsagt hinar VINALEGUSTU samræður, og maður segir bara svona við vini sína.. svo eru kennarar líka í þessu og nemendur við kennara, nemendur segja að kennarar séu feitir og kennarar segja að nemendur líti út einsog betlarar. um daginn átti kínverskukennarinn afmæli og stelpunum finnst hann svitna svo mikið í tímum svo það splæsti hver einasta stelpa á hann tissjúpakka til að þurrka svitan, mjög sætt .. allir góðir vinir og allir fara heim með bros á vör :D

Merkilegt fólk...

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 09:30:41 / dagnyjons

Beijing!

Kom á laugardaginn heim frá svona líka magnaðari ferð til Beijing!! Lenti svo í því að fá kvef og hálsbólgu, það var nebla algjör skííítakuldi í Beijing!!

Það er svo merkilegt með þessa kínverja blessaða að það má varla sjúga upp í nefið þá snúa sér allir að manni og spyrja "ertu búin að fara til læknis?"... þetta fólk fer til læknis útaf öllu!!!.. má ekki anda á þetta lið hérna.
Var því hérna heima í gærdag í staðinn fyrir að fara í skólann og var ekkert á leið til læknis enda bara hálsbólga og kvef samt á frekar háu stigi, en hvah.. þetta er bara einsog íslendingar eru með 6 mánuði á ári án þess að leita til læknis eða kvarta nokkuð yfir þessu!.. En þá hringdi host mamma mín í mig og sagði mér nú vinsamlegast um að fara til læknis þá myndi mér batna á stundinni (greinilega undralæknar her á ferð).. eg stolti íslendingurinn neitaði að fara því þetta myndi bara fara á tveimur dögum og ég þyrfti engin lyf.. hef þá reynslu að hver sem fer til læknis fer með lager af lyfjum heim, svona 10 poka af pillum.. og þá er manneskjan bara með vægan hausverk í því tilfelli. En á endanum féllst ég á að fara til læknisins og kallinn var bara nokkuð hress og ég var greind með sýkingu í hálsinum. Eg neitaði á fá nokkur lyf en hann fór þá bara að skellihlægja af mér kallinn, hefur greinilega fengið hvíta sjúklinga áður.. en hann sagði að lyf væru nú betra.. þannig núna á ég þrjá poka af lyfjum fyrir kvefi!!! Sem ég þori að veðja á að hafa engin áhrif!!

Annars um Beijing.... ferðasaga! :haha:

 

Á þriðjudaginn var komið til Beijing með flugvél frá Hong Kong. Þar var borðaður kínverskur hádegismatur og svo var farið að skoða eikkað sem heitir Temple of Heaven. Það er alveg hreint magnað fyrirbæri, risastórt byggt úr tré og það merkilegasta við það er að það er ekki einn nagli í þessu risa dæmi.. þetta er fest saman með klístruðum hrísgrjónum.
Það sem mér fannst líka merkilegt að sjá að fólkið í Bejing byggir ekki húsin sín með bambus einsog í Hong Kong þau eru með eikkað svona stádæmi.. en það er bambus alstaðar hér, hélt að það væri nú voða kínverskt.. spes að hafa ekki bambus í svona kínverskri borg...

Allavega þá er svo haldið á 4 stjörnu hótel sem er alveg magnað, fékk mjúkt rúm í fyrsta sinn í 7 og hálfan mánuð, en öll rúm í Hong Kong eru einsog gangstétt með laki yfir. Svo voru sundlaugar og heitir pottar og alveg mögnuð herbergisþjónusta, sem nýttist vel þar sem oftast voru bara hrísgrjón í kvöldmatinn.. svo að þeir voru með svona vestrænan matseðil.. þannig það var pizza og pasta á hverju kvöldi pantað með roomservice!

Daginn eftir fórum við síðan á torg hins himneska friðar sem er alveg riiiisaaaastórt... komast 1 milljón manns fyrir í einu á þessu torgi. Vopnaðir verðir útum allt og njósnarar svona ef þú segir eitthvað vont um kommúnisma eða talar um trúmál og Falong gong þá koma þeir og taka þig, hver veit hvað verður um þig þá... var einmitt mótmæli þarna 1989 þar sem 3000 manns var drepið vegna mótmæla við kommúnisma!!
Ætluðum einmitt að taka svona hópmynd á torginu og vorum með svona stóran borða fyrir framan okkur sem stóð eikkað AFS og eikkað fullt meira, um leið og við tókum hann upp komu vopnaðir hermenn úr öllum áttum og báðu okkur vinsamlegast að setja þetta niður afþví þeir skildu ekki hvað stóð og þetta gæti mögulega verið kommúnismamótmæli, kreisí pípól..
Héldum síðan áfram inní Forbidden city sem var ekkert rosalega merkilegt eða svona skemmtilegt.. bara hallir alla gömlu kínversku keisarana.

Um kvöldið fórum við á svona líka magnaða Kung Fu sýningu í leikhúsi í Beijing!!.. Þetta var ekkert lítið flott og hver og einasti þarna búinn að æfa Kung Fu frá fæðingu og voru þeir að brjóta múrsteina með höndunum og járnsverð á hausnum á sér og eikkað svona brjálæði.. sjokkerandi flott:o
Ekkert var samt farið út og skoðað borgina en það er alveg stórhættulegt... þannig það voru bara hótelpartý í hverju kvöldi.. ekki verra!!

Fimmtudagurinn fór í að skoða kínverskan grunnskóla um morguninn.. það var SPES!!... þegar við komum á staðinn voru 2000 nemendur á stórum íþróttavelli að dansa sama dansinn allir, þetta var bara einsog kínverskt herlið.. tók myndband af þessu, kannski að ég geri svona fimmtugustu tilraun í að setja myndir inn sem virkar aldrei!!
Fengum Peking önd í hadegismatinn, en það er uppáhaldsmaturinn minn!! ég át einsog svín af þessu, nú fyrst að það kom nú góður matur á borð, sjaldgæfið það!!
Eftir magnaða önd fórum við í súpermarkaðinn til þess nú að spara aðeins herbergisþjónustu og kaupa kex og gos og svona á herbergið. Sáum þarna starfsmann vera að raða í hillur 100% alkóhóli. Fannst það svo sjokkerandi að ég spurði hana hvort það mætti drekka 100% alkóhól.. hún sagði að það væri bara fullkomlega eðlilegt konan, þessir kínverjar hljóta að vera hardcore!!

Lá svo leiðin í sumarhöll gömlu keisarana í kína sem var ótrúlega flott!!... en maður var bara komin með leið á öllu þessu keisara rugli, en þetta lítur allt nokkurnveginn alveg eins út.. þannig það var ekki mikið skemmtun í því..
Tókum síðan hjólaleigubíl á stað þar sem borðað var kínverskt snakk og hjólaleigubíl til baka.. það var ekkert smá gaman þar sem þetta var í svona leið útsýnisferð yfir göngugöturnar og svona.

Um kvöldið gistum við á öðru hóteli sem er í úthverfum Beijing sem leit út alveg einsog keisarabyggingarnar gömlu. Fórum þar rétt hjá í svona spa... semsagt öldusundlaugar og heitir pottar sem endaði svo á skautasýningu.

Föstudagismorguninn var vaknað og strax labbað út og þar sáum við kínamúrinn liggja upp fjallið frá hótelinu okkar, en það er ástæðan fyrir að við skiptum um hótel eina nótt að kínamúrinn er svo nálægt.
Eg hafði aldrei ímyndað mér að það væri svona ótrúlega erfitt að klifra þennan blessaða múr!!..þetta eru tvöföld þrep allstaðar og svo ótrúlega bratt!!.. og fyndast var að ég hitti stelpu sem ég þekki frá Hong Kong á múrnum :D En annars var hann ágætur múrinn en útsýnið var voðalega flott.

Héldum svo aftur inní borgina sjálfa og fórum að versla í ekta kínverskum markaði með snarklikkuðum sölukellingum útum allt til að prútta við. Keypti nú ekki mikið!.. hægt að kaupa alla geisladiska og bíómyndir á 150 kr. þarna, meira að segja sumar myndir ekki ennþá komnar í bíó!.. vandamálið er bara að ef þeir bösta mig með þetta hérna í tollinum í HK láta þeir mig borga 30.000 kr per disk.. nennti ekki að lenda í því, mjög svekkjandi samt!!
Kvöldmaturinn var svo étinn þarna rétt hjá og var maturinn alveg ágætur fyrir utan svínið sem var borið á borð.. en það var allt útí beinum og mjaðmakúlurnar með og hnéskeljarnar og allt.. svo vorum við látin hafa rör til að sjúga beinamerginn úr svínabeinunum, ég lét þetta alveg vera!!
Þar sem þetta var seinasta kvöldið var haft það gaman á hótelinu, var ein á tímabili inní herbergi en þá hafði Emily farið eikkað út og ætlað að koma aftur og skilið eftir opna hurðina... eftir 5 mínútur voru komnir eikkerjir fullbúnir hermenn fyrir utan hurðina til þess að segja mér að loka!!

Fórum svo kl. 4 um nótt aftur á Tian'anmen torg og horfðum á fánahyllingu við sólarupprás.. var alveg fullt af fólki komið og heilt herlið. Það var líka alveg alltof kalt!!.. svo var bara hoppað beint uppí flugvél og haldið heim.

...

Fékk svo að frétta í dag frá kennaranum mínum að ég fer í sumarfrí 1. júní frá skólanum mínum!! jeijjj!!.. En krakkarnir í skólanum eru í skólanum til miðjan júlí greyjin!.. fæ því alveg þokkalega langt sumarfrí og ætla að eyða því á ströndinni og kannski læra eikkað í kínversku!!.. Get ekki beðið!!

Gerði annars bara færslu sem afsökun afþví eg nenni ekki að læra undir söguprófið mitt sem er 10. maí :/.. en verð víst að halda áfram..

 

Sælir! 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 13:55:52 / dagnyjons

Beijing á morgun

Á morgun mun ég halda í 5 daga ferðalag til Beijing!!!

 

Þá verður....

 

http://peking.org/images/img/great-wall.jpg

... labbað Kínamúrinn..

 

http://www.chinapictures.org/images/tiananmen-square/1/tiananmen-square-50408150614260.jpg

...heimsótt Tiananmen Square, eða Torg hins himneska friðar á góðri íslensku..

 

..og svo ætlar stelpan að skella sér í Íslenska sendiráðið í Beijing og kjósa !!.. Ekki er ég í vafa um hvað ég muni kjósa, auðvitað Sjálfstæðisflokkinn ! :D

..svo verður skoðað lík Maó formanns, lært að búa til kínverska Dumplings (veit ekki íslensku) og skoðað allt þetta gamla og góða þar í borg.

 Er ennþá að bíða eftir páskaeggi, en ég mig langar svo rosalega í páskaegg.. ég bíð og vona eftir einu slíku ;)

 

Farin að pakka hlýjum fötum fyrir Beijing!!

Veriði sæl!

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 15:55:26 / dagnyjons

Tad er HEITT!!!!

Gvud thad er ordid svo heitt herna ad eg er ad deyja og svo raki a vid helviti!! Eg helt eg myndi deyja ur hita i dag!!

En i dag tha for eg med host mommu minni i morgunmat i kinverskan, semsagt kjukklingavaengir i sursaetri sosu og hrisgrjon. En eg borda hrisgrjon amk. 2var a dag, thad fylgir grjonalandinu.
Stelpan skellti ser svo bara beint upp a thak i nyja bikiniinu i solbad med ipod!.. er samt ekki enn buin ad fjarfesta i solbekk thannig thad var bara tekid stoll a thetta, er tvi RAUD ad framan og hvit ad aftan, mjog saett!!
Thad var svo gott vedur og eg var svo glod yfir tvi ad eg akvad ad skella mer ut ad hlaupa eftir thad. Reyndar vissi ekki neitt hvert eg aetti ad hlaupa hedan, enda svo nyflutt og svona, thannig eg hljop bara eitthvad og vissi ekkert hvert eg vaeri ad fara, en eg endadi nu heima hja mer eftir ad hafa tynst nokkrum sinnum og hafdi tha bara tekid einum of storan hring. Ekki thad ad eg hafi ekki gott af tvi samt!! :lol:

For svo i kvoldmatnum med host fjolskyldu minni og bara allri aettinni tha forum vid a Tailenskan veitingastad herna, en eg held ad tailenskt se bara eitt af tvi besta sem eg hef smakkad!.. tha serstaklega eftirrettirnir!!

En nuna er eg einsog steiktur humar ad framan og bara rosalega islensk ad aftan :D.. maginn a mer er verstur samt.. sjokkerandi alveg!!

Aetladi ekki ad hafa thetta langt, aetladi bara ad lata vita af tvi ad eg vaeri i solbadi a medan thid erud enntha ad skafa snjoinn af bilunum ykkar a morgnanna :D:D

Gotta ykkur!!!

 Gledilegt sumar :D:D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 01:18:00 / dagnyjons

Heimsokn fra islandi

Internetid mitt hefur legid nidri i nokkra daga.. eda nanar tiltekid internet nagrannanna hehe.. eg er mjog pirrud uti tha!! Tannig eg get bara farid a netid i skolanum nuna.. er buin ad aetla ad blogga i marga daga.. en netid :S

Thad er annars buid ad vera allt brjalad ad gera einsog alltaf.. hitinn fer bara haekkandi med hverjum deginum og eg tharf ekki ad fara ut i jakka lengur, fagna tvi mjog!!

Aggi fraendi og Hafdis komu herna til Hong Kong a fostudaginn og stoppudu i fimm daga, eru a leid til Astraliu i ferdalag og voldu besta flugstoppid audvitad.
Er semsagt buin ad vera med theim mikid um helgina og var mjog erfitt ad fara aftur ad tala islensku, er ordin hevi leleg!!

Hitti tau a laugardaginn a kaffihusi nidri vid hofn og tokum svo ferjuna yfir a eyjuna sem eg hef ekki gert sidan i svona oktober :D aetludum i H&M sem var ad opna herna fyrir 3 vikum en thad var svo long rod fyrir utan ad madur nennti ekki ad bida! Forum tha a steikhus i SoHo, ekkert sma fint og svo syndi eg theim adeins herna i Central, alla barina og skemmtistadina..

A sunnudaginn hitti eg tau svo i dinner og vid forum a Hard Rock og fekk eg tha ad heyra allt sludrid af islandi, thannig tegar eg kem heim tha er eg svona frekar mikid inn.. svo gafu thau mer Topas og Rautt opal og svona noa sirus sukkuladi, var ekkert sma anaegd og er nanast buin med nammid!

Manudagurinn var ekki jafn godur dagur en tha var eg veik allan daginn, i skolanum messja.. var bara med grimu allan daginn til ad smita ekki og vildi ekki fara heim aftvi thad er alltof mikid vesen ad bidja thessa kennara um ad hleypa manni heim, thetta er svo klikkad lid.

Svo var sidasta kvoldid theirra herna a thridjudaginn og fengum vid okkur tvi pizzu og eg drog Emily med mer, thau voru vist i Yam Cha i hadegismat og hofdu ekki mikid gott ad segja um kjukklingalappirnar og allt thad :D:D..
For med thau i Mong Kok svo thar sem thau hofdu varla sed svona mikid af folki a gotu a aevi sinni, gerdum svo god kaup a markadnum thar, allt thetta kinverska dot ;)

Verd annars ad hoppa i Liberal Studies tima nuna.. og kannski fara ad blogga adeins meira a naestunni :S bara ordid allt eikkad svo venjulegt svona dagarnir thannig ad thad er litid ad segja.

En annars tha hvet eg alla Verzlinga til thess ad kjosa hann Thorsteinn Julius i fehirdi, thid munid ekki sja eftir tvi!! Enda er strakurinn algjort yndi og aevintyri einsog eg og Dora segjum alltaf.
Kosningasidan hans er www.thorsteinn.group.is ALLIR audvitad ad kjosa hann!! Eg styd hann herna i anda!

En farin i tima, blogga lengra bradum... Bless

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 17:56:26 / dagnyjons

The Big Buddah

Var að koma úr Kínverskum dinner með host fjölskyldu og Emily og fullt fullt af kínversku fólki :).. fékk 3 lucky money umslög þar.. græddi þarmeð 60 dollara sem er hádegismatur í 3 daga, sátt með það :)

Annars hefur ekki verið mikið að gerast þessa dagana en alltaf samt rosalega busy, er busy við að gera ekki neitt í raunini alveg ótrúlegt..

Í gær var stóra íþróttakeppnin í skólanum mínum og það var stemmari 11 bekkir í stúkunni að hvetja allan tíman og við vorum laang besta hvatningarliðið þarna með öll lögin á hreinu, hver einasti nemandi.. er búin að læra þau öll og líka kínverska lagið :D:D.. stelpunum fannst það svo fyndið að þær tóku vídjó af mér syngja, sýni það auðvitað ekki afþví að ég er lúði í kínversku!!.. kann kínverska þjóðsönginn samt utanaf og er alveg rosalega pro í honum hehe.. ekki það að það gagnist eitthvað, enda kann ég bara allt það sem gagnast ekki neitt :D:D syng hann samt með stolti með 6 fréttunum hérna.
Skólinn minn vann semsagt bikar fyrir að vera besti skólinn í öllum íþróttum yfir árið, en við erum víst best í öllum íþróttum samanlagt og rústuðum öllum ríku snobbuðu skólunum, var mjög gaman ;)

Það er annars eitt sem er að pirra mig, nágrannarnir mínir hérna borða uppúr ruslinu fyrir utan. Þeir búa í strákofum hérna inní trjánum og þegar ég er að borða mitt yndislega kornflex í morgunmatinn þá lít ég niður og sé nágrannana borða afgangana af kvöldmatnum mínum uppúr ruslinu.. ekki mjög góð tilfinning yfir því, en þetta venst :S

Er núna að skrifa grein í skólablaðið um kosningarnar í Hong Kong.. búin að komast að því að þetta er svo mikið kommúnistaríki að þetta er bara fáranlegt!!.. Fær enginn að kjósa nema 800 manns sem kínverska ríkisstjórnin velur sérstaklega, eikkerjir HK kommar.. þannig það vita allir hver verður formaður í HK, það er vinur forseta kína auðvitað!!

Á morgun verður svo haldið í Fjallgöngu með AFS og skoðað stóru Búddah styttuna sem er á eyju hérna fyrir utan Hong Kong..

herna er mynd af blessuðum búddah manninum..

http://img.search.com/thumb/7/7c/Buddha_lantau.jpg/250px-Buddha_lantau.jpg

 

Síðasta sunnudag fór ég bara í mest spes athöfn sem ég hef farið í... þetta var einsog í bíómynd. Eg fór semsagt í Taóista athöfn sem er svona rosalega kínversk trú. Ég tók nú ekki þátt en ákvað að horfa á.. það voru allir klæddir í karatekid búningum og svo í rauðum skykkjum með fáranlega hatta og voru að biðja fyrir guðunum með og syngja eikkerjar kínverskar bænavísur.. þetta var það fríkí að ég beið efitr að þetta fólk myndi fórna manneskju þarna á borðinu..!! ég tók nú þátt í sumu og þurfti að losa hnút á þvottapoka sem átti að þýða að ég myndi losa við reiðina í lífinu.. eitt orð yfir þessa athöfn SPES!!!
Þarf sem betur fer ekki að upplifa þetta aftur afþví þetta var sóun á sunnudegi, en alltaf gott að sjá eikkað annað auðvitað..

Þarf að sofa, þarf að vakna snemma til að heimsækja Búddha kallinn..

 Góða nótt, jó taó

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 15:35:30 / dagnyjons

Af Kínverskuafrekum

Seint verð ég talin snillingur í kínversku. Kínverskutímarnir hafa nú vissulega hjálpað og nú hef ég lært að segja allt það mikilvægasta sem þú þarft að kunna í kína, ég kann að segja KFC og Mcdonalds.. og af einhverri ástæðu kann ég líka að segja Tiger Woods :D..
Bekkjarsystur mínar gera mikið grín af mér hvað ég er léleg og ég hef í 6 mánuði reynt að segja setninguna "ég er þyrst" en einhvernveginn tekst mér alltaf að segja "ég er Kóka kóla"... og er mikið hlegið að því, þannig ég mun eyða þeim fjórum mánuðum sem eftir eru að reyna að ná þessu, ég ætla ekki að gera mig að fíbbli þegar ég fer til alvöru kína og enginn kann ensku!!.. en ég reyni nú, það telst alveg ágætt..

Annars er allt ágætt að frétta.. nema skólinn minn hringdi í mig á sunnudaginn og tilkynnti mér það að ég yrði að hlaupa 1500m hlaup á einhverju Hong Kong móti á milli skóla.. eftir eina og hálfa viku!!!..
Var ekki beint sátt þar sem ég er ekki búin að hlaupa síðan í desember en þau píndu mig í þetta afþví að þau eiga engan betri greyjin. Svo núna get ég ekki gengið né setið fyrir vöðvaverkjum eftir að hafa hlaupið 5 sinnum á 2 dögum, svo ofvirkur er skólinn minn!!.. æfingar þrisvar á dag takk fyrir, þyðir ekkert minna!. enda yrði algjört hneyksli ef við vinnum ekki, besti skólinn í HK í íþróttum hérna á ferðinni ;)

Var að frétta svo í dag að ég er á leiðinni til Beijing í páskafríinu..verður semsagt gengið Kínamúrinn og farið á torg hins himneska friðar og fleira svona skemmtilegt. Það vill svo skemmtilega til að kínverskukennarinn minn er frá Beijing þannig ég tala kínversku með Beijing hreim svo ég verð auðskilin þar í borg. Verður líka voða sérstakt að fara þetta árið afþví það er allt núna stússið í kringum ólympíuleikana og það verður gaman að sjá hvernig þeir skreyta þeir gulu, þeir kunna þetta.

 Ég og Emily erum alltaf að æfa okkur í kínversku með að tala við leigubílsstjóra sem kunna ekki ensku!.. það gengur svona rosalega vel! Ekki er heldur erfitt að segja hægri vinstri og beint áfram :D.. skilja okkur allir.. *stolt* Byrjuðum nú bara í janúar í mandarín ;)

Það er allt annars gott að frétta og alltaf hress auðvitað.. ekki annað hægt í Kína!!!... sorglegt að það sé svona stutt eftir, bara 4 mánuðir... ég vil ekki fara!!! :'(

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 17:03:56 / dagnyjons

Nýárið

Nýárið er núna alveg að vera búið og ég þarf að fara í skólann aftur á mánudaginn eftir alltof nice 10 daga frí.
Hef vissulega orðið ríkari núna í fríinu.. hef fengið svo ótrúlega mikið af happapening:D.. held að ég sé komin uppí 20.000 kr eða svo.. ekki leiðinlegt það. Ætla að kaupa mér bikiní fyrir peninginn :D.. Eina sem þú þarft að segja við fólkið er Gong hei fat choi og þau láta þig fá pening.. og ef fólk er gift gefur það þer tvöfalt!.. ég kvarta ekki..

Held bara að maður sé búinn að grennast aðeins þessa viku.. er búin að lifa á Dim Sum og Jam Cha.. og er ekki úr miklu að velja þar og þetta er ekki mikið af góðum og ætum mat þannig að ekki er borðað mikið!!..

The image “http://cine-hk.chez-alice.fr/Hkcine/Images/lexique/dimsum.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Akvað að setja herna inn mynd af morgunmatnum mínum, Dim sum...

Í dag var svo farið í Jam Cha morgunmat og host mamma mín vildi fara að versla.. ég segi auðvitað ekki nei við verslunarferð og við skelltum okkur saman að versla.
Búðirnar voru hver af annarri betri og þarna voru risa skóbúðir og allt á 700.. og þá erum við að tala um leðurstígvél og sandala og bara allur fjandinn!! Host mamma mín splæsti á okkur báðar leðurstígvél alveg rosalega fín, kostuðu 700 kr :D.. segir held ég líka bara allt um gæðin, made in china. Aðalástæðan samt fyrir ódýrum skóm á þessum árstíma er að það er rosalega mikið óhappa að kaupa skó þegar nýárið er.. og þess vegna eru skóbúðirnar bara með útsölu á öllum skóm, svo þegar nýárið er búið þá má hækka verðið aftur ;)

Annars lítið búið að gerast hérna í fríinu.. annað en svefn og kínverskur ja misgóður matur..

Bjó samt um daginn til dumplings með host mömmu minni og systir hennar.. en á dimsum myndinni er þannig neðst til hægri.. var alveg rosalega pro í þessari dumplingagerð, var tekið video af mér og læti ;)

 

Farin að sofa annars núna.. þarf að vakna snemma til þess að fara í Jam Cha... 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 06:21:08 / dagnyjons

Gleðilegt nýtt ár!!

Nú er komið nýár núna 18. febrúar. Persónulega finnst mér miklu meira töff að hafa áramót 18. febrúar heldurenn 1. janúar.

í dag fer ég að safna peningum af ættingjum og fá fullt af góðum mat :)

 

 

Ætlaði bara annars að segja Gleðilegt nýtt ár...新年快樂

...og vona að þið verðið alveg rosalega rík á árinu..恭喜發財

 

The image “http://newyeargala.ntdtv.com/2005/en/images/2005-2-7-drummers.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 18:19:38 / dagnyjons

Hæj Dúllur..

Nú er maður kominn til nýju familíunnar og manni líður bara miklu betur..

Nýja familían er svona meira minn stíll held ég, rosalega ung í anda og ekki rosalega kínversk í hugsun, ekkert of þar að segja. Bjuggu í Kanada í mörg ár þannig að þau skilja allavega annarskonar hugsun :)

Eru semsagt barnlaus hjón rétt yfir fertugu.. eiga bara risastóran amerískan hund sem gæti étið mig hann er svo stór og íbúðin er miklu stærri.
Er með sérherbergi og það næst internet frá nágrönnum inní herbergið mitt:D... ekki amalegt það :D

Tóku mig í gær með sér í hádeginu út að borða á kínverskan stað og svo aftur í kvöldmatinn. ég og host mamma mín náum bara einstaklega vel saman en hún er algjör töffari og partýstelpa :D..
Hún var með þýskan strák í fyrra og þau fóru alltaf saman út á djammið:D.. Svo er hún algjör fatafrík einsog ég þannig við náum mjög vel saman.. vann meðal annars í Versace ;)
Í kvöld þegar ég kom heim hafði hún keypt fyrir mig rosalega flottan svartan kjól sem ég er rosalega ánægð með.

En á morgun er gamlárskvöld, semsagt kínverska árið er búið Hundsárið er búið og á Sunnudaginn tekur Svinsárið við. Fullt af fjölskyldudinnerum og svona og þá fæ ég líka fullt af pening!!..

Kínverska hefðin er nebla þannig að maður fer til fullorðna fólksins og segir gleðilegt nýtt ár og það gefur manni svona rautt umslag með pening í, maður græðir víst ekkert smá mikið á þessum árstíma afþví að þegar fullorðna fólkið gefur pening þá er sagt að það fái peningana margfalt til baka um lífsleiðina. Svo ég ætla að reyna að safna eins miklu og ég get til þess að geta keypt mér bikiní fyrir sumarið:D

Svo þarf ég að baða mig í laufblöðum:D... semsagt fara í sturtu með laufblöð og nudda þeim á
augun og hendurnar.. því að þannig verð ég mjög heppin á árinu sem kemur. Á voða bágt með því að trúa þessu og efast um að laufblaðabað á augun virki mjög vel en ekki sakar að prófa þessa aðferð, mun kannski eiga rosalega gæfuríkt ár framundan :D

Fór í dag að ná í kínverska kjólinn minn, sem er alveg ágætur greyið en þetta er meira svona minjagripur en eitthvað sem ég ætla að klæðast í eitthvað daglega, enda er það ekki alveg við hæfi :D..
Hitti svo Priscillu sem var að koma úr klippingu og stúlkan ákvað bara að fá sér Afró... það var mjög fyndið! sjá kínverska stelpu með afróhár, en fór henni einstaklega vel og hún var algjör töffari þannig að allir sáttir :D

Farin að sofa núna svo ég hafi orku í allt nýársdæmið á morgun að heilsa ættingjum og fá peninga og svona gaman..

-Gleðilegt nýtt ár- Góng hei fa tsoj-


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4